Hlynur
Sævarsson

Ég heiti Hlynur Sævarsson og er grafískur hönnuður. Ég er núna á þriðja ári mínu í grafískri hönnun í LHÍ. Á þessari síðu er smá bland í poka af því sem ég hef unnið að.

maí 2026

Tröllaskarð

Nótnaletur, líkt og bókstafaletur, fela í sér ýmsa „liti“ og tilfinningar. Þau geta verið alvarleg, skemmtileg eða fræðileg og gefið hugmynd um anda verksins án þess að ein einasta nóta hafi verið leikin. Þetta nýja letur Tröllaskarð inniheldur tónlistarletur ásamt bókstafaletri í stíl og leitast við að endurspegla töfraheim íslenskra álfasagna og reynir að fanga töfraheim hins óþekkta. Með því að gera nýtt nótnaletur vil ég sýna að það er margt ókannað þegar kemur að framsetningu tónlistar í prentuðu formi.

Letrin eru sýnd í tveim bókum. Ein bókin er sett upp eins og lítil útgáfa með nótum í bland við ljósmyndir, og hitt er letursýni sem útskýrir hugmyndina og sýnir virkni letursins.

október 2025

210

Vínylumslag fyrir plötuna „210“ eftir tónlistarmanninn Ómar Guðjónsson. Ásamt plakati fyrir útgáfutónleika plötunnar.

nóvember 2025

LÓN EU tour

Plakat fyrir tónleikaferð hljómsveitarinnar LÓN um Evrópu.

ágúst 2025

Foosball-mót FÍT

Útlit fyrir foosball mót Félag íslenskra teiknara.

ágúst 2025

Foosball-mót FÍT

Útlit fyrir foosball mót Félag íslenskra teiknara.

apríl 2025

Our worst year yet. (ljósmyndabók)

Í skiptinámi mínu í Hollandi tók ég ljósmyndabóka áfanga. Þar fékk ég tækifæri til að vinna með ljósmyndirnar mínar og gera bók út frá þeim.

Þessi bók fjallar um tvo vini sem ganga í gegnum versta ár þeirra hingað til.

mars 2026

The Fool

Útlit fyrir plötuna „The Fool“ eftir hljómsveitina Flesh Machine.

mars 2025

Light, new world

Sýndarveruleika myndband og innsetning fyrir sýningu sem ég tók þátt í á meðan ég var í skiptinámi í KABK í Hollandi.

Sýningin snerist um „metamorphosis“ eða umbreytingu. Verkið mitt undirstrikar umbreytinguna sem ljós hefur á heiminn okkar.

mars 2025

RAF sans

RAF sans er steinskriftarletur sem dregur innblástur úr orku raftónlistar.

Þetta letur var lengi í vinnslu og sat á hillunni í dágóðan tíma. Letrið var svo klárað fyrir plötuna RAF með Jóhanni Agli þar sem letrið var notað í ýmsu efni í kringum plötuna.


ljósmynd: Anna Maggý

mars 2025

RAF sans

RAF sans er steinskriftarletur sem dregur innblástur úr orku raftónlistar.

Þetta letur var lengi í vinnslu og sat á hillunni í dágóðan tíma. Letrið var svo klárað fyrir plötuna RAF með Jóhanni Agli þar sem letrið var notað í ýmsu efni í kringum plötuna.


ljósmynd: Anna Maggý

nóvember 2025

RAF Jóhann Egill visuals

Plötu-umslög og efni tengt útgáfu á plötunni RAF eftir raftónlistarmanninn Jóhann Egil. Þetta verkefni fékk mig til þess að klára RAF sans letrið sem var áður ónefnt, en fékk að lifa í þrívíðum heimi í smá stund.

mars 2026

Ivar Klausen

Plötuumslag fyrir fyrstu plötu tónlistarmannsins Ívars Klausen.

ongoing

3D pælingar

Prufur og tilraunir í þrívídd. Hérna er ég að skoða svokölluð „liminal spaces“.

mars 2025

HAG CD

Plötuumslag og framleiðsla á geisladiskum fyrir djass tríóið HAG.

apríl 2025

Radiator font

Modular letur hannað útfrá ofnum í skólabyggingunni sem ég var í á meðan ég var í skiptinámi í Hollandi. Ekki mjög lesanlegt en samt skemmtilegt!

ongoing

Ljósmyndir

Meðfram grafískri hönnun hef ég einnig stundað ljósmyndun. Oftast fyrir sjálfan mig en af og til fyrir vini mína:)

Hlynur
Sævarsson

Ég heiti Hlynur Sævarsson og er grafískur hönnuður. Á þessari síðu er smá bland í poka af því sem ég hef unnið að.